Umsjón

Umsjón

Um Okkur

Hugmyndin að Umsjón kviknaði hjá íslenskum verktaka sem vildi gera reksturinn hagkvæmari og fækka þeim ólaunuðu vinnustundum sem hann vann í hverjum mánuði. Ófá kvöldin og næturnar fóru í að ná í skottið á sér þegar kom að tilboðsgerð, raða upp dagskrá frá viku til viku og passa upp á að öll samskipti á milli hans og viðskiptavina væru í lagi.

Ekki bætti úr skák að allar upplýsingar tengdar vinnunni voru á mörgum mismunandi stöðum; sumt í borðtölvunni, annað í símanum og margt einfaldlega í kollinum á sjálfum verktakanum.

Þegar að vinnan var farin að koma niður á frítímanum ákvað verktakinn að taka til sinna ráða. Það var kveikjan að Umsjón.

Tilboðsgerð, verk skoðanir, skipulag og reikningagerð eru allt verkþættir sem verktakar fá yfirleitt ekki borgað fyrir. Þessir þættir taka hins vegar mikinn tíma, margar klukkustundir á viku, sem yfirleitt eru unnar að loknum vinnudegi þegar að einkalífið og tími með fjölskyldunni á að vera í forgrunni.

Umsjón styttir þessar ólaunuðu vinnustundir um meira en helming sem þýðir að verktakar hafa meiri frítíma utan vinnu, sem skilar sér í hagræðingu í rekstri og betri andlegri og líkamlegri líðan í vinnunni. Með Umsjón getur verktakinn sinnt sinni vinnu, haft fullkomna yfirsýn yfir allt sem er í vændum og betur ráðstafað sínum tíma. Og þegar hann kemur heim getur hann skilið vinnuna eftir í Umsjón í góðum höndum.

Umsjón er hannað og þróað með þetta markmið að leiðarljósi og höfum við nú loksins tækifæri á að leyfa verktökum að nýta Umsjón og um leið ávinning þess að hafa meiri tíma til umráða.